Dagbók Ólínu Jóns

Dagbók Ólinu Jóns

14.01.2009 19:32:57 / olina

Gleðilegt nýtt ár - veski

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og vandamenn, nær og fjær :p
Best að byrja á veskjunum hennar mömmu, hún er að selja þau á 4.500 krónur fullorðins, og svo er hún með svona minni fyrir ungu skvísurnar, þau kosta 3.000.  Frábær veski :d
Annars er allt gott að frétta af mér.  Ég er flutt í Grafarvoginn aftur, allt of mikið vesen að vera tvö í sitt hvorri íbúðinni svo ég leigði mína íbúð og flutti inn til Magga (stærri íbúð ;) )
Allt í lukkunnar velstandi nema hvað ég er orðin aðeins OF æfð í að segja "niður"!  Maggi á sko kött sem hefur einstakan áhuga á eldamennsku og máltíðum :$  En það venst nú væntanlega 8)
Er að byrja síðustu önnina í diplómanáminu sem þýðir að ég útskrifast í vor.... ástæða til að halda partý.... veeeiiiiiii :klikk:  Nanna.... þú komst í síðustu útskrift.... verður að mæta núna aftur sko:!::!::!:
Annars er ég löt að blogga eins og alltaf, en er komin á facebook eins og þorri þjóðarinnar, þar er auðveldara að droppa inn o gsetja inn línu um hvað maður er að bralla í augnablikinu ;
Nenni ekki meiru í bili.... hafið það gott mín kæru!

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 22:11:33 / olina

smá blogg í tilefni dagsins

Já, það er kominn enn einn afmælisdagurinn.  Snæbjörn er 44 ára í dag, til hamingju með daginn :haha: 
Hann Maggi minn var að reka á eftir mér að blogga og þegar ég spurði hvað ég ætti að segja þá sagði hann mér bara að segja hvað ég ætti æðislegan kærasta úr Grafarvoginum.  Svo þar hafið þið það :p
Annars er bara allt gott hjá mér.  Er reyndar búin að liggja í hálsbólgu og hitavellu undanfarna daga en er að skríða saman.
Það er alltaf sama sagan, nóg að gera í vinnu og skóla, hlakka til í vor þegar þetta skótastúss er búið :)  Svo er ég farin að selja Tupperware líka, eins og þið sjálfsagt vitið.  Endilega ef þið viljið hafa kynningu eða kaupa eitthvað... hafið samband :klikk:  Gaman að hóa saman góðum hóp, kynnast Tupperware og spjalla svo saman á eftir ;)
Unnur Helga er heima núna og verður fram í miðjan janúar... þvílíkur lúxus að hafa hana heima :)  Skil ekki í fólki að vera að æða til útlanda :lol:  Taki það til sín sem eiga ;)
Er hálf andlaus eitthvað svo ég læt þetta duga í bili.
Minni á www.jolastjarnan.net sem er jólastöð sem Maggi og félagar hans eru með... jólalög allan sólarhringinn... hvað getur það verið betra 8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 00:36:50 / olina

Opið hús hjá Barðstrendingafélaginu

Barðstrendingafélagið í Reykjavík verður með opið hús í Konnakoti, samkomusal félagsins, Hverfisgötu 105, miðvikudaginn 19. nóvember klukkan 20:00.
Inga Hrefna Jónsdóttir, sálfræðingur, frá Mýrartungu II mun flytja fyrirlestur um Kraft hugans – hugræna atferlismeðferð.  Að því loknu gefst tími fyrir spjall og léttar veitingar.
Félagið er þessa dagana að vinna í því að virkja félagsmenn til þáttöku í hvers kyns viðburðum, en dæmi um viðburði hjá félaginu er fjáröflunardagur á vegum Kvennadeildar, jólakortagerð, samverustund í Heiðmörk, rútuferðir á sumrin, dansleikir og jólavaka sem verður í desember.
Átthagafélög eru ekki síst mikilvæg þegar mikið bjátar á því þangað er hægt að sækja vináttu, gleði og stuðning um leið og maður styrkir ræturnar sem liggja í okkar tilfelli í Vestur og Austur Barðastrandarsýslum. 
Hlökkum til að sjá sem flesta í Konnakoti 19. nóvember kl.20:00
Barðstrendingafélagið í Reykjavík.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 23:24:21 / olina

Fullt af afmælum og ferðalögum

Já, nú hafa aldeilis verið afmæli meðan ég var tölvulaus í Noregi og Heiðukoti.  Svavar Jón var náttúrulega 5. ágúst eins og fram kom síðast.... til lukku :)  Hann er nú í fyrirfram útskriftarferð á Kanarí:!:  Svo hófst runan, 16. ágúst átti Elínrós afmæli, til hamingju frænka :d , 17. ágúst átti Skotinn minn hún Nanna afmæli, til hamingju og ég vona að þú hafir átt frábæran dag :haha: svo 18. ágúst átti Sara frænka afmæli og 19. ágúst Stebbi frændi.  Held ég sé ekki að gleyma neinun, annars bara biðst ég afsökunar og óska eftir athugasemdum 8)
Það var alveg frábært í Noregi hjá okkur mömmu.  Ferðin bókstaflega flaug áfram.  Það var nýtt hótel hverja nótt nema einu sinni svo að þetta var talsvert strembið ferðalag en alveg þess virði að vera alltaf að dröslast með töskuna :)  Byrjuðum á skíðahóteli fyrir ofan Lillehammer, keyrðum svo yfir Dofrafjöllin sem var rosa gaman, til Þrándheims, vorum þar eina nótt.  Fórum náttúrulega í Niðaróssdómkirkjuna og það var alveg magnað, ég hef lesið svo margt um þessa kirkju að mér fannst ég hálfpartinn vera komin heim og sá fyrir mér kóngana og drottningarnar og pílagrímana sem komu að biðja við skrín Ólafs helga.  Það er líka ofboðslega fallegt þarna, við mamma fórum í göngu meðfram ánni Nið um kvöldið og þá voru tónleikar í Biskupaborginni sem er við kirkjuna, fyrst þegar maður heyrði óminn var eins og það væri munkakór eða eitthvað að syngja í kirkjunni... maður fékk bara gæsahúð.  En svo þegar nær dró heyrðum við að þetta var nú bara einhver skrýtin poppmúsík en það sniðugasta var að það bergmálaði yfir ána svo maður heyrði þetta í steríó, aðeins á eftir reyndar öðru megin en það var bara kúl :d
Svo héldum við til Álasunds minnir mig næst, vorum þar í 2 nætur.  Rosalega fallegt í Álasundi, skil ekki afhverju maður heyrir ekki meira um það.  Daginn milli náttanna þar fórum við í siglingu alla leið inn í Geirangursfjörð.  Ég var búin að hlakka svo til en varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum, þetta var einhvernveginn ekki eins magnað og ég hélt, en fallegt er þarna og upplifun að sigla lengst inn í land gegnum firðina.  Ótrúlegt að sjá syllubýlin þar sem fólk bjó í fjallshlíðunum og þurfti að tjóðra börnin úti svo þau rynnu ekki bara niður í sjó:!:
Við fórum í land með litlum ferjubáti í Geirangri og fórum þar í rútuna og keyrðum til baka.  Keyrðum meðal annars niður hinn fræga Tröllastíg.  Það er nú bara ótrúlegt að fólki hafi dottið í hug að hægt væri að gera veg þarna upp.  Það er bara sikksakk vegur, reyndar ekki nema 10° halli en ótal 360 gráðu beygjur og vegurinn mjór svo það er ekkert gott að mæta bílum!  Þetta fannst mér alveg magnað.  Svo keyrðum við að Tröllaveggnum sem er þar rétt hjá.  Það er rúmlega kílómeters hár þverhníptur klettaveggur sem menn dunda við að klífa og sofa þá í hengirúmum á leiðinni upp:!:  Sumir eru nú ekki alveg heilir:!:
Næst var haldi til Förde sem er ósköp lítill bær og ekkert að gera nema horfa á fallega landslagið sem er allstaðar í Noregi.  Við mamma lentum í reykingaherbergi og það var svoleiðis stybban þar inni.  Ég hringdi en hótelið var fullbókað svo við urðum að láta okkur þetta nægja. 
Svo fórum við til Bergen sem er virkilega falleg og áhugaverð borg.  Ég hefði alveg verið til í að vera auka dag þar.  Tókum lestina upp á útsýnisstað, það er eiginlega þverhnípt upp svo inni í lestinni eru pallar því annars myndu allir hrúgast á botninn bara :lol:  Fallegt að horfa þar yfir.
Svo fórum við yfir Harðangursléttuna og til Geilo sem er frægur skíðabær inn í miðju landi.  Vorum þar eina nótt og héldum svo af stað til Drammen þar sem síðasta nóttin yrði.  Á leiðinni stoppuðum við í Vassfaret Björnepark sem er garður þar sem maður getur séð dýrin í sínu rétta umhverfi.  Þarna búa 5 birnir og við sáum tvo sem mættu í matinn, fylgdumst með þeim borða brauð með súkkulaði en það fá þeir um miðjan daginn, grænmeti og ávexti á morgnana og kjöt eða fisk á kvöldin.  Svo fengu elgirnir gulrætur en þarna var einn elgur með kálf sem við sáum.  Það var virkilega gaman að sjá þessi dýr svona í návígi.  Svo fengum við hádegismat, elgkjötsúpu sem var bara ljómandi góð og ís með bjarnaberjum í desert, drukkum svo mjöð með öllu saman.  Það var borðað inn í hlöðu, geiturnar jörmuðu fyrir utan og svölur flugu inn og út, þetta var sko alvöru ;)  Það skemmtilegasta þarna var nú samt hún Berte Skrukkefyllhaugen, sem mætti með pípuna sína og prjónana og sagði okkur sögu sína og Vassfaret dalsins.  Það voru bara 12 býli í Vassfaret dalnum en fullt af björnum, Berte var síðust til að flytja úr dalnum, 1921, hún dó í hárri elli rúmlega níræð.  Hún sagði okkur sögur af lífi sínu, ferðalögum og upplifunum í dalnum.  Það var t.d. þriggja daga ferðalag fyrir hana að fermast en þá þurfti yfir fjallið til Flå þar sem garðurinn er nálægt og Berte bjó síðustu árin.  Svo mætti hún einu sinni birni, hélt fyrst að það væri vinur sinn af nágrannabænum að stríða sér en sá svo alvöru björn þegar hún gekk fyrir stóran stein, björninn var mun hræddari en hún og stökk í burtu og stóð berjaskitan aftur úr honum :lol:  Svo fékk einhver karlinn forláta klukku sem fólki þótti nú óþarfi þar sem það miðaði tímann við sólina.  Svo einhverntímann gerði dimmviðri eða þoku í nokkra daga og fólkið fór að treysta á klukkuna en svo kom í ljós þegar birti að blessuð klukkan var 2 tímum of sein og hafði því alveg ruglað systeminu hjá þeim :lol:  Alveg einstök kerling :haha:  Eiginlega miklu áhugaverðari en dýrin ef eitthvað er :d  Mæli með þessum garði:!:
Svo eyddum við síðustu nóttinni í Drammen en ég var au-pair þar fyrir 10 árum:!:  Vá, hvað tíminn flýgur.  Það var góð tilfinning að koma þangað aftur þó Drammen sé í sjálfu sér ekki spennandi bær.  Við keyrðum upp Spíralinn sem liggur inni í fjalli upp á toppinn á því, það er fallegt útsýni yfir bæinn.  Síðasta daginn vorum við svo í Osló, skoðuðum margt sem ég hef séð áður en það er eitt sem ég hef klikkað á.  Hef oft séð ráðhúsið en aldrei labbað að því og skoðað goðafræðimyndirnar sem þar eru... rosa flottar og gaman að lesa um hverja mynd :)
Það er óþarfi að nefna að við keyrðum í gegnum ótal göng og yfir ótal brýr og tókum ótal bílferjur á leið okkar.  Vildi að við værum aðeins nær Norðmönnum í vegamannvirkjum ;)
Fólkið í ferðinni var alveg frábært, við vorum 47 með fararstjórunum, ég var yngst 32 ára og sú elsta var 88 ára og stóð sig eins og hetja.  Gulla fararstjóri var alger snillingur og bílstjórinn okkar, bóndasonurinn Ívar gat svarað öllum okkar spurningum um Noreg.  Ég mæli hiklaust með þessari ferð fyrir alla sem hafa áhuga á að sjá fallegt landslag og upplifa virkilega magnaða náttúru.
Mamma minnir mig á ef ég hef gleymt einhverju, jú maturinn, einhvernveginn dettur manni lax í hug.  Við fengum oftast hlaðborð og þar var lax í öllum útgáfum.  Fengum tvisvar matinn borinn á borð, í annað skiptið var lax í aðalrétt og hitt í forrétt.  Þeir eru greinilega stoltir af laxinum sínum!  Það voru krakkar út um allt að selja nýtýnd jarðarber, hindber og kirsuber, rosalega góð en skrýtið að sjá ekki meira af þeim á desertborðunum!
Svo fór ég eiginlega beint í Heiðukot með Magga þar sem við eyddum heilli viku.  Inga og Árni komu fljótlega á eftir okkur, svo voru Laufey og dætur á svæðinu og um helgina komu gestir að vanda, Silli vinur Árna með fjölskyldu og Hrönn og systur hans Magga, Fanney og Solla með Ásþór Breka sinn sem er 5 ára frábær pjakkur.  Virkilega góður tími og ég er að hugsa um að fara aftur vestur á morgun :lol:
Svo var ég að kaupa Spánarferð í október, ætla í húsmæðraorlof með Magga, Ingu, Árna, mömmu og Möggu Ág.  Það verður fínt, rúmar 2 vikur í letilíf 8)
Annars er bara allt fínt, ég byrja í skólanum um miðjan september og útskrifast svo í vor með diplóma í öldrunarhjúkrun :haha:
Blessi ykkur.

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 14:56:05 / olina

Blogg já

Voða æsingur er í ykkur elskurnar mínar... vitið þið ekki að góðir hlutir gerast hægt ;)
Jújú, ég veit, ég er búin að hoppa yfir fullt af afmælum og biðst innilega afsökunar og óska öllum til hamingju með afmælin sín.  Svavar Jón verður svo 21. árs (já, 21. árs) 5. ágúst en þá verð ég í Noregi svo hann fær bara hamingjuóskir núna :) 
Já, ég ætla til Noregs í nokkra daga með mömmu, förum með Bændaferðum í rútuferð um Noreg.  Mig hefur alltaf langað svo að skoða mig meira um í Noregi og þessi ferð var bara eins og pöntuð fyrir mig.  Keyrt upp Guðbrandsdalinn frá Osló og svo yfir til Þrándheims, þaðan niður á við, gegnum Bergen og þessa staði, siglt inn Geirangusfjörðinn og svo er síðasta nóttin í Drammen svo ég get sýnt mömmu hvar ég eyddi tæpu ári 98-99.  Þetta verður örugglega stórkostleg ferð :)
Ég ætlaði svo alltaf að segja ykkur frá Danmerkurferðinni en ég, mamma og Magga Ág skelltum okkur til Unnar í maí.  Ég fór á ráðstefnu, DemensDagene, og þær notuðu tækifærið meðan ég var þar og fóru í Kristjaníu og keyptu hasspípur gömlu konurnar:!:  Unnur sagði að karlinn hefði verið svo æstur í að selja þeim að hann gaf þeim pípuhreinsara og síur og græjur svo þetta myndi nú virka... hlustaði ekkert á að þetta væru bara minjagripir.  Hann hefði örugglega látið þær hafa mola líka ef þær hefðu beðið hann :$ 
Annars þræddum við Kaupmannahöfn þvera og endilanga og náðum að sjá og upplifa rosa margt :)  Fórum að borða á áströlskum stað og smökkuðum kengúru, krókódíl og emúa svo eitthvað sé nefnt... mesta furða hvað það var lítið ógeðslegt :lol:
Annars skrifaði ég dagbók í stikkorðastíl og best ég láti hana fylgja, þið bara spyrjið ef þið viljið nánari uppslýsingar ;)  Föst: Unnur eldaði naut.  Litun og plokkun.  Laug: Carlsberg safnið, dýragarðurinn, borðuðum á Nýhöfn.  Sun: Sigling um sýkin, nýja og gamla hafmeyjan, Amager höll, Kastell? (virkið), Strikið, borðuðum á Hereford.  Mán:  Gengum í óperuna, sáum Bróðir minn ljónshjarta, silgdum yfir til Nyhavn og borðuðum á Custom house.  Þri:  Ólína á ráðstefnu, hinar fóru til Glostrup, á Carlsberg Glyptotek safnið, skoðuðu 3 kirkjur (Frúar, Heilags anda og Marmara), magasín að versla (ég hitti þær þar), borðuðum á japönskum stað (Wagamama).  Mið: Ólína á ráðstefnu, hinar sváfu út og fóru til Kristjaníu, ég hitti þær svo og við fórum í Amagercentret að versla.  Borðuðum á Reef n Beef, þessum ástralska, með Lillu.  Fimm: Verslunardagurinn mikli, fórum í skóbúð, á strikið og í Fisketorvet, borðuðum þar og löbbuðum yfir brúna og heim.  Fös:  Fórum til Lyngby að sækja skó, Magga var rænd á lestarstöðinni, skoðuðum Rosenborgar höll, versluðum á Vesterbrogade, ég fór heim en hinar að versla á Amagerbro, tívolí um kvöldið.  Ætli við höfum svo ekki farið heim á laugardeginum ;)
Auðvitað fæddust nokkrar limrur sem er best að ég láti fylgja :lol:
Þröngt mega sáttir sofa
og yfir hvern annan klofa
um daga og nætur
dvelja örþreyttir fætur
á dýnum í UHJ kofa.

Kengúru og kródíl átu
konurnar eins og þær gátu
á þrælfínum stað
það kemst sko á blað
þriflegu kerlurnar kátu

Í kirkjurnar konurnar æddu
og Kristjaníu þær þræddu
með hasspípur heim
þær héldu í geim
þá Ólína og Unnur þær hæddu

Svo er strax farið að spá í næstu utanlandsferð, til Spánar í húsmæðraorlof í október.  það verður bara næs :)
Jú, svo var ættarmót á Reykhólum um daginn, fólkið hennar ömmu á Stað, virkilega vel heppnað ættarmót... bara með þeim betri held ég svei mér þá. 

Jæja, þarf að fara að drífa mig í vinnuna, það vantar svo hjúkkur núna... ég frestaði fríinu mínu og er fyrst að fara í frí eftir kvöldvaktina á morgun.

Blessi ykkur


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 23:00:12 / olina

Afmælisblogg fyrir Hörpu Björk

Jújú, Nanna hafði rétt fyrir sér... Árni Garðar er löngu búinn að eiga afmæli (14.apríl) og ég biðst innilega afsökunar á að hafa sleppt því að óska honum til hamingju á blogginu þá en geri það hér með :)  Hann gaf mér náttúrulega köku svo að það er lágmark að þakka fyrir það :d

Og svo á hún Harpa Björk afmæli á morgun, 30. apríl.  Litla frænka mín er að verða 26 ára ef ég tel rétt:!:  Vá, hvað tíminn flýgur 8|  Ég man þegar ég var hjá ömmu á Stað, ætli ég hafi ekki verið svona 8-9 ára og Harpa svona tveggja. Ég var svo stolt yfir að hún vildi fá gista hjá mér og við sváfum í litla rúminu inni á Kvisti hjá ömmu :) 
Svo þegar ég var au-pair í Noregi var Harpa skiptinemi í Þýskalandi og við skrifuðumst á.  Það var alltaf notalegt að fá bréfin frá henni, sérstaklega þar sem ég var oft með heimþrá en sá hvað hún var dugleg svo ég gat ekki annað en bitið á jaxlinn og verið ánægð :)  Enda var ég ánægð... það er ekki það.... en bréfin hennar Hörpu glöddu mig alltaf :)
Og nú er hún aftur komin til útlanda stelpan.  Er að standa sig vel í Englandi, bloggar reglulega og leyfir okkur að fylgjast með.  Ég er ódugleg að kvitta en ég kíki alltaf öðru hvoru á frænku og hef gaman af að fylgjast með því hvað hún tekur sér fyrir hendur. 
Ég er stolt af þér frænka og mér þykir vænt um þig eins og allt fólkið á Stað :)

Held ég láti þetta nægja í bili :)


» 23 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 17:56:17 / olina

Páskadagur og Unnur 29 ára

Til hamingju með daginn elsku litla systir..... skil ekki hvernig Unnur getur orðið 29 ára þegar ég er búin að vera 29 í mörg ár.... Þetta er eins og mamma segir.... við náum henni öll á endanum :haha:
Unnur er búin að vera á landinu en flaug til Köben aftur í dag.... ég sagði henni að fá sér kampavín í vélinni í tilefni dagsins... vona að hún hafi staðið við það:klikk:
Árni og Inga eru fyrir vestan að vinna í bústaðnum, það átti að setja raflagnir í hann núna held ég... þetta er allt að verða tilbúið.  Verst að maður er að missa þennan fína veislusal:$
Annars er bara allt gott að frétta held ég.  Ég er komin á nýjan bíl, Toyotu Corollu sedan árgerð 2007:d  Ekkert smá ánægð með gripinn.  Ég féll fyrir honum um leið og ég sá mynd af honum, ég er búin að fatta afhverju, hann er frostblár (ljósblár) og minnir mig á fyrsta bílinn sem ég eignaðist 17 ára gömul.  Það var gamall pusjó sem gekk undir nafninu "blái gleðipinninn".  Ég fer að brosa bara við tilhugsunina um allt sem  var brallað á rúntinum í þeim bíl:lol:  Þannig að ég held að sá blái sé bara endurborinn og vona að þessi eigi eftir að veita mér jafnmiklar ánægjustundir;)  Halla og Hrönn, þið eruð hér með boðnar á rúntinn við tækifæri:p
Það er brjálað að gera í skólanum þessar vikurnar... mikið af verkefnum sem þarf að skila.  Búin að vera að gera hópverkefni líka sem var miklu skemmtilegra en ég bjóst við.  Ég hélt að allir yrðu ósammála og ritgerðin yrði alveg út og suður en við bara féllum saman eins og flís við rass, enda allar hjúkrunarfræðingar og vanar að gefa sprautu í rassinn:lol::klikk:  Úr varð þetta fína verkefni um Alzheimersjúkdóminn og sorgina.  Svo var tveggja manna verkefni um óyrta verki og svo þurfum við að gefa annað álit á meðferð við hægðatregðu.  Að lokum er svo lífssögu verkefni en þá þarf ég að taka hálfgert ævisöguviðtal við aldraðan einstakling.  Og þá er bara eftir stóra ritgerðin sem ég er að hugsa um að tengja hópverkefninu og skrifa um hvað við hjúkrunarfræðingar getum gert til að hjálpa fólki gegnum sorgina þegar heilabilunarsjúklingur deyr.  Eruð þið ekki alveg að kafna úr áhuga??8)
Já, svo má ég ekki gleyma að segja að við mamma ætlum að skella okkur í Noregsferðina sem ég skrifaði um í síðasta bloggi... hlakka ekkert smá ti:haha:  Mamma hélt að hún myndi nú ekkert hafa efni á því en svo er hún helmingi duglegri en ég að safna svo það endar með að ég slæ hana um lán:$ 
Annars er mamma að prjóna og selja handtöskur með svona lopapeysumynstri, kosta 4000, ógeðslega flottar... ég skal reyna að setja myndir af þeim við tækifæri... endilega hafið samband ef ykkur vantar tösku eða gjöf:d
Jæja, ég bið að heilsa í bili... Árni á afmæli í apríl og Inga í maí svo þið getið átt vona á tveimur bloggum á næstu mánuðum:lol:


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 13:30:02 / olina

mamma, Noregur og prins í álögum

Jæja, ég klikkaði aðeins á afmælinu hennar mömmu en segi hér með:  Til hamingju með daginn um daginn elsku mamma og takk fyrir allt og allt :D  Að sjálfsögðu var þetta líka fína kaffiboð í boði Unnar og mömmu og það bara getur alls ekki klikkað :P

Það er nú gott að vita að afmælið mitt er ekki lengur bara 19. desember, nú er það brúðkaupsdagur Nínu og Ármanns.... til hamingju með það Nína... hvað eruð þið búin að vera gift lengi?  Með leyfi að spyrja ;)

Jólin voru góð að venju, var á morgunvöktum öll jólin svo að maður gat ekki sökkt sér niður í Stephen King og Skáld-Rósu en maður á það bara eftir 8)  Eins og einhver ykkar vita var Skáld-Rósa langalangalangamma mín, hún átti Þórönnu Rósu sem átti Ólaf sem átti Hallgrím sem átti mömmu sem átti mig :D Það er sko ekki slæmt :)  Held ég geti ekki tengt mig Stephen King 8|:lol:

Frumlegasta jólagjöfin sem ég fékk var frá Unni Helgu, hún gaf mér meðal annars prins í álögum:!:  Held að það séu ekki margir sem hafa fengið svoleiðis grip að gjöf ;)  Þetta er semsagt froskur í fullum skrúða, með kórónu, veldissprota og ég veit ekki hvað og hvað.  Á honum hékk miði sem á stóð: Kysstu mig!  Auðvitað kyssti ég hann eins og skot, ætlaði nú ekki að láta þennan prins framhjá mér fara.... en ekkert gerðist :(  Þá fór mig nú að gruna að hann hlyti að vera hommi blessaður.  Ég fór með hann niður í vinnu til að sýna þeim nýja kærastann og þar var allur vafi kysstur af... hann er ekki hommi 8|  Þá vissi ég nú eiginlega ekki hvað ég átti að halda en svo uppgötvaði ég að þetta er náttúrulega danskur prins svo að þetta er ábyggilega Hamlet og hann er bara hreinlega ekki búinn að ákveða sig hvort hann á að vera.... eða ekki vera.... froskur :lol:  Ég bara bíð spennt :haha:

Annars langar mig ógeðslega mikið í ferð til Noregs í sumar.  Bændaferð frá 2.-10. ágúst, það er farið í rútu og allt skoðað sem mig langar að sjá í Noregi held ég bara:!:  Sérsniðið að mínum þörfum :lol:  Kostar reyndar 150 þúsund en það er allt innifalið nema nokkrir hádegisverðir svo ég held að þetta sé alls ekki svo dýrt.  Noregur er jú dýrt land :$  Fjölskyldan hummar þetta fram af sér svo ég verð bara að auglýsa eftir ferðafélaga/félögum hér.... hver vill koma með mér til Noregs??  Sjá baendaferðdir.is 

Annars erum við Unnur Helga að fara til Nönnu núna um miðjan mánuðinn... hlakka ekkert smá til... við verðum frá fimmtudagsmorgni til sunnudagskvölds... ekkert svaka stopp en nóg til að faðma þau og skiptast á fréttum... og vonandi fara í super mario bros á Wii :lol:

Er hætt í bili... næsta afmæli er Unnur í mars en ætli ég reyni ekki að blogga eitthvað fyrr:!:

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 23:04:47 / olina

bara 19. desember....

... veit ekki hvað þau gömlu voru að hugsa að hafa engan svona "dag" fyrir mig, pabbi var fæddur á höfuðdaginn, mamma daginn fyrir gamlársdag, Snæbjörn á fullveldisdaginn, Inga í sauðburðinum, Unnur stundum um páskana en ég er bara 19. desember... hvað gerist þá annað en að ég á afmæli??  Jú, það er stundum bylur... ekki þetta árið samt... rok og rigning er ekkert mjög spennandi :lol:

En annars er ég svosem bara sátt, að verða 32 ára eftir miðnættið, búin að fá pakka frá mömmu sem ég get opnað í fyrramálið, búin að baka smákökur og undirbúa fyrstu jólaglöggina sem ég hef á ævi minni gert, búin í prófunum sem gengu bara ágætlega.  Það er reyndar eitt verkefni eftir sem ég klára fljótlega. Hvað gæti það verið betra?? ;)

Held ég sé ekkert að bulla meira í ykkur.... langar nú samt að fá ykkar álit... er jólaglögg kvenkyn eða hvorugkyn??


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 23:12:18 / olina

Fullveldisdagurinn

Sæl veriði.... langt síðan síðast ... hverjum er það að kenna??  MÉR??

Ég var búin að lofa bloggi 1. desember og reyni að uppfylla það hér með.  Snæbjörn á semsagt afmæli í dag og þá er nú ástæða til að blogga.  Innilega til hamingju gamli minn:haha:  Annars gleymdi ég alveg Júllu, hefði getað bloggað 5. nóvember líka... heppin að lofa því ekki :lol:

Annars er nóg að gera hjá mér.  Var í prófi á laugardaginn fyrir viku, þarf að skila tveimur verkefnum á mánudaginn, kynna eitt á þriðjudaginn, taka próf 14. des og skila verkefni 22. des.... maður ætti ekki að hafa tíma til annars en ég er nú svosem búin að eyða deginum í dag í eintóma vitleysu.  Við vorum að skreyta húsið að utan í sameiningu og hittumst svo inni hjá mér í súkkulaði og smákökum... það er svolítið notalegur siður... skemmtileg útfærsla á húsfundi :)  Svo fór ég í kirkjugarðaleiðangur með mömmu og Ingu, við fórum og settum greinar og kerti hjá helstu vinum okkar þar ;)  Yndislegt veðrið alveg, logn og blíða en reyndar jökulkalt:!:  Svo var náttúrulega afmæliskaffi hjá Snæbirni og svo var hægt að þykjast læra aðeins í kvöld þangað til mér datt í hug að ég gæti frekar bloggað en lært.... var fljót að stökkva á það :lol: 

Fyrir utan námið gengur lífið sinn vanagang.  Það skiptast á skin og skúrir eins og alltaf.  Pétur, mágur hennar mömmu er nýdáinn, hann var orðinn 91 árs en það er nú samt alltaf sorglegt þegar fólk kveður. 

Ég. mamma, Inga og Árni fórum hópferð til Unnar í október.  Það er alltaf gaman að koma til Köben.  Fórum líka í óperuna þar á Don Juan og það var ansi mögnuð sýning, sérstaklega í lokin!  Við vorum með bílaleigubíl og nýttum okkur hann til fulls.  Tókum ferjuna til Jótlands og hittum vinafólk Árna í Árósum, keyrðum svo alveg upp til Skagen sem er nyrsti hluti Jótlands og einhver ykkar muna örugglega eftir úr dönskubókunum í gamla daga.  Ég heillaðist algerlega af Skagen og er ákveðin í fara þangað síðar og vera nokkra daga.  Við gistum þar eina nótt svo við rétt sáum það helsta.  Þar er til dæmis kirkja sem er hálfsokkin í sand, það stendur bara turninn eiginlega upp úr... ferlega merkilegt:!:  Svo morguninn eftir héldum við strax af stað aftur, keyrðum niður eftir Jótlandi einhversstaðar í miðjunni sirka.  Fórum upp á Himmelbjerget:!:  Það er sko svaka fjall maður.... NOT :lol:   Þetta er eins og Herjólfsdalurinn í Eyjum, maður leitar og leitar og áttar sig svo á að maður er kominn inn í smá kvos eða upp á smá hæð.  Vegurinn liggur þannig að maður er bara allt í einu komin upp, maður finnur ekkert fyrir að maður er að keyra brekku eiginlega, svo er reyndar bratt niður hinumegin að ánni.  Það er hægt að sigla í gufubát frá Silkeborg að Himmelbjerget, ég væri líka alveg til í það einhverntímann.  Eins og ég hélt að Danmörk væri leiðinleg þá langar mig nú samt aftur að skoða meira 8| Svo keyrðum við niður í Kolding að hitta vini Svavars og þeirra sem búa þar, fórum svo yfir Fjón til baka, stoppuðum hjá Lilju Margréti og krökkunum í Odense og vorum komin seint og síðir heim til Köben.  Vel heppnuð ferð ... takk fyrir mig Unnur :haha:

Mig langar líka að nota tækifærið og segja ykkur vinum mínum og ættingjum sem lesa þetta blogg að mér þykir ofboðslega vænt um ykkur.  Ég er nýlega búin að átta mig á hvað er mikilvægt að eiga góða vini og vera góður vinur.  Ég vona að þið hafið fyrir löngu áttað ykkur á því :)

Vona að þið séuð sátt kæru lesendur... við mamma eigum báðar afmæli í desember svo vonandi þurfið þið ekki að bíða alltof lengi eftir næstu færslu.  Takk fyrir að nenna alltaf að kíkja hingað, endilega tjáslið :D

P.S. ný skoðanakönnun... ári síðar... sama þema ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 23:01:23 / olina

Höfuðdagur

Það er komið enn eitt afmælið og því tilefni að blogga. Hann karl faðir minn hefði orðið 66 ára í dag. Ekki er það nú hár aldur og allt of langt síðan hann kvaddi okkur. Við höfum haldið þeim sið að hittast á eða um afmæli hans og við vorum öll í mat hjá mömmu í kvöld nema Árni sem er að vinna úti á landi einhversstaðar. Svo komu Geiri og Dóra í heimsókn og Rúna vinkona hennar Unnar. Þannig að hér hefur verið líflegt. Ekki má gleyma nýja frændanum sem Geiri og Dóra eru nýbúin að eignast. Hann heitir Jökull og er þriggja mánaða gamall hvítur, loðinn chihuahua hundur! Þvílík dúlla, manni fór bara næstum að langa í hund.... næstum!

Er annars búin að missa af fullt af afmælum til að blogga á svo ég skil að fólk sé farið að reka á eftir mér! Svavar Jón, Elínrós, Nanna... til hamingju með daginn um daginn híhí og allir hinir líka sem ég held að lesi ekki þetta blogg!

Annars er bara allt gott að frétta held ég. Ég fer að byrja í skólanum, tek 8 einingar og verð vonandi bara í 60% vinnu svo það ætti að vera ljúft bara. Það verður skrítið að fara að læra aftur, hélt að sá pakki væri búinn. En manni dettur nú ýmisleg vitleysan í hug! Annars var mér boðin aðstoðardeildarstjórastaða á fjórðu hæðinni í sumar. Ég hugsaði mig mikið um en ákvað að afþakka pent, aðallega vegna þess að ég ætla að vera í lítilli vinnu og held að ef vel á að vera þurfi maður að vera meira á staðnum. Sérstaklega á þessari deild líka því að það hefur verið einhver óánægja með stjórnunina þar. Deilarstjórinn minn varð alveg brjáluð þegar hún frétti að mér hefði verið boðin staðan, hvað væri verið að reyna að stela af henni starfsfólki... þannig að ég get ekki verið annað en upp með mér, að vera boðin staðan og svo að þær vilja ekki missa mig! *mont, mont* hehe

Ég var bara 3 vikur í sumarfríi en nýtti þær vel. Var viku í bústað í Eyjafirðinum, fór á Snæfellsnesið, í Reykhólasveitina og til Skotlands að hitta Nönnu og co. Var hjá þeim í viku og það var alveg yndislegt..Samantha tekur mér alltaf eins og hún hafi bara séð mig í gær en nú hafði allt of langur tími liðið. Læt það ekki gerast aftur ;) Svo eru frænkur mínar á Stað algerar dúllur, Aníta Hanna stækkar og stækkar, talar og talar og maður skilur áttunda hvert orð híhí Védís orðin stór og dönnuð, finnst ansi stutt síðan ég heimsótti Rebekku á fæðingardeildina þegar hún kom í heiminn. Skil ekki hvað verður um tímann. Talandi um öll "börnin" mín. Ég sá líka litlu Danina mína í sumar. Þau eru í sirkus sem kom til landsins í sambandi við KFUM og K held ég. Tvíburarnir voru kinnar og léku líka ýmsar listir, Svava gekk á stultum og var aðstoðarkona töframannsins og Guðfinna var trúður. Alveg frábært og mikið var ég stolt af krökkunum "mínum" híhí

Jæja, var að taka um Sex, love and secrets... það er búið svo ég get gripið spóluna og haldið heim á leið. Skal reyna að standa mig betur í framtíðinni annars er þá Snæbjörn næstur 1. desember! Endilega kvittið.

Kveð með vísunni sem pabbi fékk í afmælisgjöf frá Hafsteini frænda fyrir allmörgum árum.

Á höfuðdaginn hugsa ég til þín

 þó heldur sé hún lítil gjöfin mín.

Ég var að biðja Guð að geyma þig,

hann gerir það nú held ég, fyrir mig.


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 23:27:08 / olina

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún Inga, hún á afmæli í dag :haha:  Ég bauð mér náttúrulega í kaffi og fékk kökur... nammi namm :P

Annars er allt gott að frétta að venju.  Er nýbúin að fá svar frá hjúkrunarfræðideildinni um að ég komist í diplómanám í öldrunarhjúkrun í haust.  Það verður gaman, maður hlýtur að læra eitthvað nýtt og verða svolítið betri í því sem maður gerir :)  Þetta er 20 eininga nám, tekið á 2 árum svo að þetta er bara 4 og 6 einingar á önn.  Vel viðráðanlegt með vinnunni.  Svo er ég að taka núna 3 eininga áfanga í Endurmenntun, Nám og kennsla á vettvangi... læra að verða betri kennari.  Ég verð orðinn alger snillingur þegar öllu þessu er lokið :klikk:

Ég fór með mömmu og Möggu í leikhús í gær, sáum Ást í Borgarleikhúsinu.  Ég verð nú bara að mæla með því að allir sjái þetta stykki.  Hrein snilld.  Maður hlær og grætur og syngur.  Leikararnir eru allir stórkostlegir og ná persónunum ótrúlega vel, ég þekkti rosa marga karaktera þarna allavega.  Að öðrum ólöstuðum var Theódór Júlíusson þó langsamlega bestur, sérstaklega þegar hann söng Því ekki að taka lífið létt, ég pissaði næstum á mig af hlátri.  Og þegar Skapti syngur Perfect day....það lá við að ég gréti með ekka.  Tær snilld... þið bara verðið að sjá þetta:!:  (er ekki á prósentum;) )

Svo er Eurovision framundan.  Mér finnst Eiríkur náttúrulega frábær og efast ekki um að hann komist í úrslitun.  Önnur lög sem eru í uppáhaldi hjá mér eru Finnland, Svíþjóð og Hvíta-Rússland... held mig á norðurslóðum ;)  Ég stend mig líka að því að raula danska lagið þó mér hafi ekki fundist það neitt spes... en það er greinilega grípandi... I´m your drama queen tonight :$ 

Og svo kosningar, bara næstum jafn spennandi og Eurovision :lol:  Unnur mundu að kjósa:!::lol:  Ég er svo innilega að vona að ríkisstjórnin falli en ég er ansi hrædd um svo verði ekki.  Íslendingar eru svo hryllilega vitlausir :evil:  Nú eru allir að gera könnun á http://xhvad.bifrost.is um hvað þeir eiga að kjósa.  Þetta er nú frekar stutt könnun en ég var ekki hissa á mínum skoðunum, nema hvað ég er hissa að Framsókn sé í öðru sæti hjá mér.  Þeir eru nú sennilega bara ágætir ef þeir eru í betri félagsskap en undanfarin 12 ár ;) Leyfi ykkur að gamni að sjá hvernig þetta kom út hjá mér. 

Svo á Svavar Jón næst afmæli svo þið megið búast við næsta bloggi 5. ágúst :lol: 

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 6.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 50%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 14%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 08:41:38 / olina

Aftur komið afmæli!!

Í dag er það hann Árni Garðar sem verður 43 ára, til lukku með það gamli minn:haha:

Langar að minna á aðalfund Barðstrendingafélagsins sem er á morgun kl. 16 í Konnakoti.  Það verða kökur í boði ;) :lol:  

Annars er svosem bara allt gott að frétta hjá mér.  Er á leið í Hveragerði, það er fundur alltaf einu sinni í mánuði út árið.  Ég komst ekki síðast út af vinnu svo ég ætla að drífa mig núna.  Það gengur svosem ekkert alltof vel hjá mér í þessarri "lífsstílsbreytingu" minni, þarf að vera duglegri að fara út að ganga:!:

Jæja, þarf að fara að drífa mig á stað, taka bensín áður en ég keyri yfir heiðina miklu.

Hafið það gott kæru þið, ég skal reyna að blogga fljótt aftur.  (það er allavega ekki svo langt í næsta afmæli, 7. maí :klikk: )


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 23:47:30 / olina

Alltaf að blogga á afmæli!

Hún litla systir mín heldur áfram að stækka og er 28 ára í dag! Til hamingju elsku Unnur Helga mín! Greyið er ein að læra í Danaveldi í staðinn fyrir að halda partý á klakanum... þú bætir það upp um páskana Unnur, bíður mér í afmælisveislu ;)

Annars er það af mér að frétta að ég er komin með dagbókina og myndirnar á skrifborðið hjá mér, svo nú hlýtur að fara að koma að þessu Kúbubloggi mínu ;)

Enda þetta á bréfi sem við mamma sömdum:

Komið þið sæl.

Þessa dagana erum við að safna saman og koma á prent ljóðunum hans Manna, Jóns Snæbjörnssonar, frá Mýrartungu. Þess vegna viljum við biðla til ykkar, að þið hristið upp í minninu, kíkið í gamlar gestabækur, skoðið gömul heillakort og sjáið hvort einhversstaðar leynist ljóð eða vísa eftir hann. Ef svo er, þætti okkur vænt um að þið kæmuð því til okkar. Með tölvupósti, bréfapósti eða í gegnum síma.

Með fyrirfram þakklæti, Aðalheiður Hallgrímsdóttir Veghúsum 31 #906 112 Reykjavík s. 567 0904 netfang: heidahallgrims@vortex.is


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 19:22:13 / olina

hvaða hvaða

þriðjudagur smiðjudagur :lol:  Betra seint en aldrei býst ég við ;)  Ég er orðin alveg hryllilega löt við að blogga... skil ekkert í mér... nenni ekki einu sinni að skoða mitt eigið blogg... hvað þá annarra:!:  Það er nú ekki eins og ég hafi neitt annað að gera svo það er best ég reyni að sparka í rassinn á sjálfri mér öðru hvoru, blogga og tjásla hjá öðrum:!:

Við mamma fórum semsagt vestur á fimmtudaginn fyrir rúmri viku.  Eins og áður hefur kom fram var Lionskvöld á Reykhólum (Dalamenn mættu líka) og það var skáldakynning hjá þeim.  Síðustu ár skilst mér að hafi verið smáskáldin Jón Thoroddsen og Gestur Pálsson en nú var sko komið að alvöru skáldi, honum pabba :haha: 

Við mamma bjuggum til þetta líka fína prógram, þó ég segi sjálf frá :klikk:  Systkini mín voru öll upptekin svo að við plötuðum Dagnýju á Seljanesi til að syngja með okkur.  Mamma tók með sér gítarinn og við byrjuðum prógrammið á að syngja 3 lög með textum eftir pabba.  Svo skiptumst við mamma á að lesa slatta af vísum og kvæðum eftir hann með smá kynningu inn á milli.  Dalli var búinn að lesa æviágrip pabba úr árbókinni og segja um hann nokkur orð.   Þetta var svona hálftíma prógram held ég (eða átti að vera það, tók nú ekki tímann ;) )  Og þetta tókst líka svona ljómandi vel.  Vakti mikla lukku og í lokin stóðu allir upp og klöppuðu fyrir okkur.  Maður fékk bara kökk í hálsinn:!:  En mikið þótti mér vænt um þetta og mikið er ég stolt af honum pabba mínum :D 

Væri til í að setja allt prógrammið á netið, en eitthvað verð ég nú að spara það svo þið kaupið bókina þegar hún kemst á prent :klikk:  Leyfi ykkur að njóta vísnanna sem við enduðum á, ég man seinni vísuna og vona að sú fyrri sé rétt hjá mér líka:

Á Stað mér birtist lífsins leyndi kraftur

hér læðast margskyns dularöfl á kreik.

Að koma hér til æsku minnar aftur

þá öðlast sálin ró á nýjan leik.

 

Víst elska ég Staðinn og allt sem þar lifnar og grær

og ekkert í heiminum slitið mig burt þaðan fær.

Á víkinni báran sér vaggar hjá örsmárri hlein

því vorið er komið og fegurðin ríkir hér ein. 

Ætla að fá mér göngutúr til Ingu og fá lánaða dagbókina frá Kúbu, blogga svo um Kúbu næst :P


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Könnun
Tókstu eftir að ég setti inn nýja könnun?